Fyrirtækið Tæknivörur ehf. var stofnað árið 1992. Frá upphafi hefur áherslan verið á innflutning, dreifingu og sölu á ýmiskonar notendabúnaði fyrir fjarskiptaþjónustu: síma, farsíma, módem, beina og fleira frá mörgum af stærstu framleiðendum heims á borð við Ericsson, Nokia, Sony, Thomson, Technicolor, LG og Samsung. Ör tækniþróun og miklar sviptingar á heimsmarkaði í þessum geira hafa kallað á breyttar áherslur eftir því sem gamlir risar hnigna og nýjir verða til. Undanfarin 10 ár hefur samstarf okkar við Samsung aukist jafnt og þétt og reka Tæknivörur í dag eina viðurkennda þjónustuverkstæði landsins fyrir Samsung Mobile á Íslandi auk þess að vera dreifingaraðili Samsung fyrir Ísland, Færeyjar og Grænland.
Við leggjum áherslu á gæði og góða þjónustu enda viljum við eiga í langvarandi sambandi við okkar viðskiptavini.
Við ávinnum okkur traust viðskiptavina okkar og samstarfsaðila með heilindum og áreiðanleika.
Við kunnum okkar fag og erum sífellt á tánum gagnvart tækifærum til að bæta þjónustu okkar gagnvart viðskiptavinum.
Líkamlegt og andlegt heilbrigði er okkur öllum mikilvægt. Við leggjum áherslu á heilbrigt jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Við leggjum áherslu á ábyrga umgengni við umhverfi okkar, endurnýtingu, flokkun úrgangs og sjálfbæra umgengni við auðlindir.
Við sýnum metnað og frumkvæði í því hvernig við mætum þörfum viðskiptavina okkar og leggjum okkur fram um að fara fram úr væntingum þeirra.
Tæknivörur leggja áherslu á að ganga vel um umhverfið og að stuðla að sjálfbærni í hvívetna. Þess vegna minnum við viðskiptavini góðfúslega á að rafhlöður og rafgeymar eru spilliefni og mega ekki fara í almennt sorp. Hjálpumst öll að við að flokka og skila og stuðlum þannig að skynsamlegri og sjálbærri nýtingu auðlinda.
Þú mátt skila rafhlöðum úr símum og öðrum snjalltækjum til okkar að Víkurhvarfi 4, Kópavogi. Einnig er hægt að skila rafhlöðum og rafgeymum til móttökustöðva sveitarfélaga eða spilliefnamóttöku og það kostar þig ekki neitt.
Hlutverk
Hlutverk
Hlutverk
Hlutverk