Enn á ný er Beitan komin út. Í þessari útgáfu er ekki laust við að tíðrætt verði um frelsi og öryggi. Meðal efnis er eftirfarandi:
Frelsi og öryggi, sem fjallar stuttlega um þá spurningu, sem lengi hefur vafist fyrir mönnum, hvernig tryggja megi frelsi og öryggi á sama tíma. | |
Frelsið er yndislegt, fjallar um eina af helstu ástæðum þess að Android er eins vinsælt og raun ber vitni. | |
Samsung Knox, er samnefnari yfir margvíslegar viðbætur við hið „venjulega“ Android sem er árangur umfangsmikillar þróunarvinnu Samsung undanfarin ár. Markmið Samsung er að bjóða kröfuhörðustu viðskiptavinum áreiðanleg tæki í öruggu umhverfi án þess að skerða frelsi notenda til að nýta tækin í eigin þágu eftir eigin höfði. . |
Jafnframt er hægt að nálgast PDF útgáfu af Beitunni hér.